Innlent

Fimm ára barn féll af fjórðu hæð

Fimm ára barn féll af svölum fjórðu hæðar fjölbýlishúss í Austurborginni rétt fyrir klukkan sex í gær. Barnið var flutt á slysadeild Landsspítala-háskólasjúkrahúss. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Reykjavík virtust meiðsl þess ekki eins alvarleg eftir skoðun læknis og talið var í fyrstu. Tæknideild lögreglunnar skoðaði aðstæður og er málið í rannsókn. Lögregla segir ekkert benda til óeðlilegra orsaka fallsins. Bæði gras og hellur séu fyrir neðan svalirnar en ekki sé ljóst hvar barnið lenti



Fleiri fréttir

Sjá meira


×