Innlent

Sjómaður slasaðist á hendi

Sjómaður á togaranum Guðmundi í Nesi slasaðist illa á hendi í gær. Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti manninn eftir að rætt hafði verið um ástand hans við lækni. Þyrlan fékk fylgd flugvélar Landhelgisgæslunnar en ekki minni þyrlu hennar af öryggisástæðum. Of langt hefði verið fyrir þá minni að flúga að skipinu sem var statt 165 sjómílur vestur af Reykjavík. Skipstjórinn var beðinn að sigla á fullri ferð á móts við þyrluna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×