Innlent

Sameining lögregluliða

Lagt er til í skýrslu dómsmálaráðuneytisins um nýskipun lögreglumála sem birt var í gær að lögregluembættin þrjú á Höfðuborgarsvæðinu verði sameinuð. Í skýrslunni er einnig nefnt að mögulegt sé að sameina lögreglulið Akraness og Reykjavíkur annars vegar og Kópavogs, Hafnarfjarðar og Keflavíkur að flugvellinum þar hins vegar. Sameina eigi lögreglulið á öllu landinu með það að markmiði að lögreglulið hafi í fullu tré við þá sem gerist brotlegir við lög. Erfitt geti verið að sameina liðin úti á landi vegna stopulla samgangna á veturna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×