Innlent

Reyndi að stinga af

Lögreglumenn á Akranesi höfðu afskipti af grunsamlegum manni á föstudagskvöld. Maðurinn tók til fótanna þegar hann varð var við lögreglumennina en þeir náðu þó að hlaupa hann uppi og handsama. Við handtöku náði hann að kasta frá sér tveimur litlum bögglum sem reyndust innihalda 4 grömm af amfetamíni og 11 grömm af sveppum. Við ítarlegri leit á manninum fundust 1,5 grömm af amfetamíni og í framhaldi var farið í húsleit á heimili hans. Þar fundust 25 grömm af hassi, 1,7 grömm af amfetamíni og 2,2 af sveppum. Maðurinn var yfirheyrður og sleppt að því loknu. Málið er enn í rannsókn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×