Innlent

Flutningabíll fauk af veginum

Gámaflutningabíll fauk út af veginum norðan við Akureyri í gærmorgun. Ökumaðurinn slasaðist á andliti og var fluttur á slysadeild með sjúkrabíl en meiðslin voru þó ekki mikilsháttar. Að sögn lögreglu var bíllinn enn á sama stað um sídegis í gær því ekki þótti nógu gott veður til þess að koma honum á réttan kjöl. Hvassviðrið var töluvert í bænum, þakplötur á nýbyggingu losnuðu og var björgunarsveit kölluð út. Ekki urðu þó nein meiðsli á fólki.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×