Innlent

Handtekinn með fíkniefni

MYND/Vísir
Lögreglan á Akranesi hafði afskipti af einum góðkunningja lögreglunnar í gærkvöld þar sem hann var á gangi í bænum. Maðurinn tók til fótanna þegar hann varð var við lögreglu en hún náði að hlaupa hann uppi og handsama. Þegar lögreglumenn handsömuðu manninn náði hann að kasta frá sér tveimur litlum bögglum sem reyndust innihalda fjögur grömm af amfetamíni og ellefu grömm af sveppum. Við leit á manninum á lögreglustöð fannst eitt og hálft gramm af amfetamíni og í framhaldi af því var leit gerð á heimili hans. Þar fundust 25 grömm af hassi og um tvö grömm af amfetamíni og sveppum. Málið er í rannsókn lögreglu en manninum var sleppt eftir yfirheyrslu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×