Viðskipti innlent

Hagnaður bankanna aldrei meiri

Stóru viðskiptabankarnir þrír högnuðust um 40 milljarða króna í fyrra, sem er enn eitt Íslandsmetið. Landsbanki og Íslandsbanki tilkynntu afkomu sína í dag og er nýliðið ár enn eitt methagnaðarárið í sögu bankanna. KB banki hafði áður tilkynnt um 15,8 milljarða hagnað eftir skatta í fyrra sem var langt yfir væntingum. Hagnaður Íslandsbanka var 12,7 milljarðar og hagnaður Íslandsbanka 11,4 milljarðar. Samtals gerir þetta tæpa 40 milljarða króna. Það er aflaust erfitt fyrir fólk að átta sig á um hversu gríðarmiklar upphæðir er að ræða. Sem dæmi má nefna að fyrir 40 milljarða má reka heilbrigðiskerfið í landinu í hálft ár og þetta er ríflega tvöföld sú upphæð sem ríkið ver til samgöngumála í ár. Jafet Ólafsson, framkvæmdastjóri Verðbréfastofu, segir hagnaðinn ánægjulegan og að rétt sé að gleðjast yfir þessu. Hann segir skýringuna á þessum háu tölum megi að stórum hluta rekja til gegnishagnaðar vegna sölu á hluta- og skuldabréfum. Og almenningur nýtur góðs af, segir Jafet, með minnkandi vaxtamun. Hann segir athyglisvert að stór hluti teknanna sé að koma erlendis frá, til dæmis komi 60% af hangaði KB banka erlendis frá. Hann telur að hagnaður bankanna í ár verði ekki svona mikill. Vöxtur og útrás bankanna eigi þó eftir að halda áfram. Það kemur einnig fram í afkomutölunum að vanskil hafa sjaldan eða aldrei verið minni þó útlán hafi aukist gríðarlega á árinu. Gengi bréfa í öllum bönkunum hefur hækkað í kjölfar þessara afkomutalna. Að lokum skulum við skoða athyglisverðar tölur um heildareignir bankanna. Eignir KB banka nema 1.534 milljörðum, eignir Landsbanka 730 milljörðum og eignir Íslandsbanka 675 milljörðum. Samtals gerir þetta 2.939 milljarða sem eru tíföld fjárlög ríkisins í ár.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×