Innlent

Tók myndir inni á kvennasalerni

Ungur maður á yfir höfði sér sektir fyrir brot á blygðunarsemi en hann var staðinn að því að taka myndir af konu á kvennasalerni á skemmtistað í bænum aðfararnótt sunnudags. Konan varð hans vör og kallaði á lögreglu sem handtók hann á staðnum og lagði hald á minniskubb úr stafrænni myndavél sem hann notaði til verksins. Við yfirheyrslur bar hann að vinir sínir hefðu manað sig upp í þetta en það kemur nú í hlut ákæruvaldsins að meta þá skýringu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×