Innlent

Ekki alvarlegt athæfi

Tilkynnt var um þjófnað á næturklúbbnum Casino í Keflavík klukkan 04.38 aðfaranótt gærdagsins. Klúbburinn var enn þá opinn, en hann er með frjálsan opnunartíma, þegar starfsfólk kom að manni fyrir innan barborðið. Maðurinn var þá búinn að opna peningakassa staðarins og taka úr honum 4.500 krónur. Lögreglan í Keflavík var skjót á staðinn, handtók manninn á staðnum og ræddi aðeins við hann. Maðurinn var síðan sendur til síns heima þar sem athæfi var ekki talið alvarlegt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×