Innlent

Tveimur vélsleðum stolið

Tveimur vélsleðum var stolið frá Litlu kaffistofunni aðfaranótt laugardags. Að sögn lögreglunnar á Selfossi liggur ekki fyrir hvernig sleðunum var stolið eða hver hafi gert það en málið er í rannsókn. Eigandi sleðanna er fyrirtækið Arcanum en Ríkharður Sigmundsson, talsmaður þess, hvetur þá sem telja sig hafa séð sleðana að hafa samband við lögreglu eða við sig í síma 898-8141. Sleðarnir munu vera auðþekkjanlegir á appelsínugulum lit á vélarhlífinni og eru merktir Arcanum og snow.is.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×