Innlent

Fjórir handteknir í Garðabæ

Fjórir 17 ára piltar voru handteknir fyrir utan Stjörnuheimilið í Garðabæ aðfaranótt laugardags. Að sögn lögreglunnar í Hafnarfirði voru piltarnir að reyna að komast inn á Þorrablótsskemmtun sem þar var haldin án þess að hafa til þess aldur. Þegar þeim var meinuð innganga sýndu þeir mótþróa og var þá hringt á lögregluna sem handtók piltana. Þeir voru hafðir í fangageymslum um nóttina en sleppt í gærmorgun að lokinni skýrslutöku.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×