Innlent

Tekinn fyrir ölvunarakstur

Ökumaður, sem grunaður er um ölvun, varð valdur að árekstri á Ísafirði laust fyrir klukkan fimm í morgun. Tveir fólksbílar rákust saman á gatnamótum Ásgeirsgötu og Suðurgötu á Tanganum og reyndist ökumaður annars bílsins, piltur um tvítugt, ölvaður. Hann gistir nú fangageymslu lögreglunnar á Ísafirði. Þar er einnig annar ökumaður grunaður um ölvunarakstur, en sá var gómaður eftir að bíll hans hafði verið skilinn eftir mannlaus á miðri götu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×