Innlent

Í fangelsi fyrir ölvunarakstur

Tveir menn fæddir árin 1947 og 1949 voru í Héraðsdómi Reykjaness á föstudag dæmdir í þrjátíu daga fangelsi og til sviptingar ökuréttar ævilangt fyrir ölvunarakstur. Áfengismagn annars mannsins mældist 2,02 prómill en 2,8 prómill hjá hinum. Báðir höfðu mennirnir áður hlotið dóm og verið sviptir ökuréttindum, sem hafði ítrekunaráhrif. Mönnunum var báðum gert að greiða allan sakarkostnað.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×