Innlent

Unir dómi

27 ára hollensk kona sem var, í Héraðsdómi Reykjavíkur, dæmd í eins árs fangelsi fyrir kókaínsmygl í nóvember síðastliðinn hefur ákveðið að una dómnum. Hún ákvað að áfrýja ekki dómnum þar sem hún yrði hvort sem laus úr haldi þegar að niðurstaða kemur úr Hæstarétti en útlendingar þurfa aðeins að sitja inni helming refsingarinnar. 235 grömmum af kókaíninu smyglaði hún innvortis og afhenti það íslenskum manni á hóteli í Reykjavík eftir að hafa náð efnunum úr líkama sínum. Þau voru bæði handtekin á hótelinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×