Innlent

Sýknaður fyrir að aka löggur

Maður sem var ákærður fyrir að aka á lögreglumenn við Lyfju í Lágmúla í Reykjavík var sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Vafi lék á hvort maðurinn hefði ekið bílnum á lögreglumennina af ásetningi. Maðurinn kom inn í apótekið eftir að sambýliskona hans hafði játað þjófnað í versluninni. Til orðaskipta kom milli hans og lögreglu og var hann leiddur út. Starfsmenn gátu ekki greint frá því hvað fólkinu fór á milli. Lögreglan tók sér stöðu fyrir framan bifreiðina. Maðurinn ber að hann hafi sett sjálfskiptan bílinn í rangan gír.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×