Innlent

Með fíkniefni innvortis

Íslensk kona um þrítugt var handtekin á Keflavíkurflugvelli með fíkniefni innvortis og í fórum sínum þegar hún kom til landsins á þriðjudag. Í kjölfarið var konan úrskurðuð í gæsluvarðhaldi til dagsins í dag. Fíkniefnin fundust við hefðbundið tolleftirlit en lögreglan á Keflavíkurflugvelli verst allra frétta af málinu og vill hvorki tilgreina tegund né magn fíkniefnanna. Ekki liggur fyrir hvort farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir konunni í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×