Innlent

Fór strax úr landi

Nígeríumaður sem handtekinn var í tengslum við innflutning á tæpu kílói kókaíni fyrir tveimur vikum hefur verið látinn laus. Sá sem flutti kókaíni inn er tæplega þrítugur Ungverji en hann situr enn í gæsluvarðhaldi. Ekki þótti ástæða til að halda Nígeríumanninum lengur og var hann látinn laus á þriðjudagsmorgunn. Hann fór úr landi strax sama dag. Rannsókn málsins stendur enn yfir. Metmagn var sett í innvortisinnflutningi þegar efnin komu til landsins en Ungverjinn hafði þurft að gleypa hluta þeirra aftur eftir að pakkningarnar höfðu skilað sér niður úr honum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×