Innlent

Fleygði hassinu fram af svölum

Fjögur hundruð grömm af hassi fundust í húsleit á heimili tuttugu og fimm ára manns í Reykjavík seinni partinn á þriðjudag. Maðurinn var handtekinn og færður á lögreglustöðina til yfirheyrslu. Maðurinn reyndi að losa sig við hassið þegar lögregluna bar að garði. Hann sást henda tveimur plötum af hassi fram af svölum íbúðarinnar sem er í fjölbýlishúsi. Honum var sleppt að loknum yfirheyrslum í fyrrakvöld en ekki þótti ástæða til að fara fram á gæsluvarðhald yfir manninum vegna rannsóknarhagsmuna. Maðurinn hefur lítillega komið áður við sögu lögreglu. Rannsókn málsins beinist að því hvort um sölu hafi verið að ræða. Húsleitir sem þessar eru nær daglegt brauð en tæplega átta hundruð fíkniefnabrot komu upp í umdæmi lögreglunnar í Reykjavík á síðasta ári



Fleiri fréttir

Sjá meira


×