Viðskipti innlent

Nýr framkvæmdastjóri Marel UK

Magnús Ólason verkfræðingur hefur tekið við framkvæmdastjórn Marel UK í Bretlandi af Halldóri Magnússyni sem snýr til höfuðstöðva Marels og tekur við viðskiptaþróun á Asíumarkaði. Magnús hefur starfað sem tæknistjóri hjá Marel UK frá stofnun þess 1998 en fyrir þann tíma starfaði hann við höfuðstöðvar fyrirtækisins. Samkvæmt tilkynningu á vef Kauphallar Íslands mun Magnús halda áfram að þróa frekar starfsemi Marel UK í markaðssetningu á hátæknivinnslubúnaði  í Bretlandi inn í  kjöt-, kjúklinga- og fiskiðnað.  





Fleiri fréttir

Sjá meira


×