Innlent

Ölvaður á veghefli

Lögreglan á Egilsstöðum var á Fljótsdalsheiði við framkvæmdasvæði Kárahnjúka í gærmorgun þegar hún stöðvaði veghefilsstjóra sem var þar við vinnu grunaðan um ölvun í starfi. Maðurinn, sem er starfsmaður Impregilo, mun að sögn lögreglu á Egilsstöðum hafa verið að skemmta sér kvöldið áður en ekki gætt þess að sofa áfengisáhrifin úr sér. Hann verður sviptur ökuréttindum en Vinnumálastofnun mun taka ákvörðun um hvort maðurinn haldi vinnuvélaréttindum sínum áfram.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×