Innlent

Ákvörðun sýslumanns kærð

Kona sem ásakar mann um stuld á þremur teikningum Muggs hefur kært ákvörðun sýslumannsins á Patreksfirði, um að fella málið niður, til ríkissaksóknara. Þórólfur Halldórsson sýslumaður segir kæruna fresta því að teikningarnar verði afhentar manninum sem hafi haft þær undir höndum. Þær séu því enn í vörslu lögreglu eins og síðustu tvö ár. Hjá ríkissaksóknara var sagt að ákveðið yrði hvort afgreiðslumátinn verði staðfestur, þurfi frekari rannsóknar við eða verði felldur úr gildi. Það taki um tvær vikur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×