Innlent

Bílvelta í Ásahreppi

Ökumaður jeppa meiddist lítillega í fyrrinótt í bílveltu á Suðurlandsvegi, rétt austan við afleggarann að Ásmundarstöðum í Ásahreppi. Atvikið átti sér stað rétt upp úr miðnætti þegar jeppabifreiðin, sem var á leið austur, fór út af norðan vegarins. Snerist hún í mikilli hálku og valt. Ökumaðurinn, sem er á fertugsaldri, meiddist lítillega en fékk að fara heim að lokinni læknisskoðun. Bifreiðin er aftur á móti ónýt. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli voru nokkrir lítils háttar árekstrar á svæðinu í gær enda rigndi töluvert á hálan veginn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×