Innlent

Kertalogi orsök brunans

Bruni á Akureyri í fyrrinótt orsakaðist af kerti sem brann niður án þess að íbúinn yrði þess var fyrr en of seint. Kertið brann í gegnum borð sem það stóð á. Nágranni sýndi mikið snarræði og bjargaði stúlkunni sem þar bjó út undir bert loft en hún var að reyna að skríða út úr reykjarkófinu af sjálfsdáðum. Hún var flutt á sjúkrahús með snert af reykeitrun. Vel gekk að slökkva eldinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×