Innlent

Rúður brotnuðu í sprengingu

Þrír ungir karlmenn eru í haldi lögreglunnar í Reykjavík, grunaðir um skemmdarverk. Laust fyrir klukkan eitt í nótt var tilkynnt um sprengingu við Skipholt. Þar hafði verið sprengd heimatilbúin sprengja með þeim afleiðingum að skyggni við veitingastaðinn American Style skemmdist, rúður brotnuðu og fleira. Þremenningarnir voru handteknir í kjölfarið og bíða þeir þess að verða yfirheyrðir. Engin slys urðu á fólki.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×