Innlent

Eldur í eldgömlu húsi

Elds varð vart í eldgömlu húsi á Svalbarðseyri um hádegisbil í gær, laugardag, en greiðlega gekk að ráða niðurlögum hans.  Jakobshús heitir húsið og er frá aldamótunum 1900. Þar er ekki búið heldur eru þar lítið hjólbarðaverkstæði, þvottatæki og hljómsveitaraðstaða. Eldur kom upp í einu horni hússins og voru skemmdir af honum óverulegar en reykur fór um það allt. Upptök eldsins voru ókunn í gærkveldi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×