Innlent

Keyrði næstum undir flutningavagn

Litlu mátti muna að alvarlegt umferðarslys yrði á Selfossi á hádegi í gær þegar malarflutningavagn rann þvert á móti umferð. Það var á móts við Fossveg sem malarflutningabíll þurfti að stoppa snögglega þegar bíll á undan honum hægði á sér til að beygja út af veginum. Ökumaður malarflutningabílsins sá að hann næði ekki að stöðva bílinn í tæka tíð og ákvað þess vegna að víkja bílnum út í hægri vegaröxl. Það fór þó ekki betur en svo að vagninn aftan í bílnum rann þvert á veginn. Bíll sem kom aðvífandi á móti þurfti að sveigja út í vegarkant til þess að lenda ekki undir vagninum. Hann skrapaði hins vegar vinstri hlið bílsins utan í vagninn og skemmdist töluvert. Ökumaður bílsins slapp engu að síður heill á húfi en engu mátti muna að alvarlegt slys yrði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×