Innlent

Árekstur jeppa og fólksbíls

Rétt fyrir klukkan tíu síðasta miðvikudagsmorgun lentu saman hvítur Toyota Land Cruiser jeppi og grár VW Golf fólksbíll á mótum Arnarnesvegar og Bæjarbrautar í Garðabæ. Lögreglan í Hafnarfirði lýsir eftir vitnum að óhappinu og biður fólk sem veitt getur upplýsingar að hafa samband í síma 525 3300. Jeppanum var ekið austur Arnarnesveg, en fólksbifreiðinni norður Bæjarbraut og ætlaði vestur Arnarnesveg.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×