Innlent

Engin beiðni frá þýsku lögreglunni

Engin beiðni hefur enn borist frá þýsku fíkniefnalögreglunni um aðstoð starfsbræðra hennar á Íslandi við að upplýsa smyglmálið sem tengist togaranum Hauki. Fíkniefnadeild Lögreglunnar í Reykjavík hefst því ekkert sérstakt að í málinu að svo komnu. Þá hefur enginn Íslendingur enn tengst málinu þegar Ungverji reyndi að smygla tæpu kílói af kókaíni til landsins innvortis daginn fyrir gamlársdag. Hann og Nígeríumaður, sem handtekinn var skömmu síðar, eru enn í gæsluvarðhaldi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×