Innlent

Hlupu uppi tölvuþjóf

Skjót viðbrögð lögreglunnar á Akureyri við boðum frá þjófavarnakerfi í verslun Office One í bænum urðu til þess að hún gómaði þjóf sem stolið hafði fjórum fartölvum að andvirði um níu hundruð þúsund krónur. Þegar lögregla kom á vettvang sást til þjófsins á harðahlaupum og tóku lögreglumenn þá líka til fótanna og eltu hann. Á flóttanum kastaði hann tölvunum frá sér og var loks gómaður inni á gistiheimili. Hann og tölvurnar eru nú hjá lögreglunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×