Innlent

Kannabisefni í bíl og heima

Um hundrað grömm af kannabisefnum fundust hjá manni sem stöðvaður var á bíl sínum í vesturborginni undir kvöld í gær. Kannabisefni fundust í bílnum og síðan við húsleit heima hjá honum. Megninu hafði verið pakkað í litlar umbúðir eins og seldar eru á götunni og er maðurinn grunaður um að hafa ætlað að selja efnið. Honum var sleppt að yfirheyrslu lokinni í gærkvöldi en málið verður rannsakað nánar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×