Innlent

Sektaður fyrir fíkniefnabrot

Fertugum manni var, í Héraðsdómi Reykjaness í gær, gert að greiða 35 þúsund krónur í sekt fyrir fíkniefnabrot og þjófnað. Verði sektin ekki greidd innan fjögurra vikna kemur átta daga fangelsi hennar í stað. Maðurinn var tekinn í janúar fyrir tveimur árum með átján amfetamíntöflur og 42 rítalíntöflur í fórum sínum. Lyfin sem maðurinn var með hafði læknir skrifað upp á fyrir eiginkonu hans og son. Þá stal maðurinn hleðsluborvél í verslun í Hafnarfirði að verðmæti fimmtíu þúsund króna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×