Innlent

Dæmdur fyrir hassinnflutning

Þrítugur maður var í Héraðsdómi Reykjaness í gær dæmdur í sjö mánaða fangelsi fyrir innflutning á rúmum 190 grömmum af hassi sem hann flutti til landsins í febrúar í fyrra. Fimm mánuðir af refsingunni eru skilorðsbundnir til þriggja ára. Tollverðir á Keflavíkurflugvelli fundu hassið í farangri mannsins en hann kom með flugi frá Kaupmannahöfn. Hann játaði skýlaust að hafa gerst sekur um innflutninginn. Maðurinn á nokkurn sakaferil að baki.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×