Innlent

Saug fé upp úr stöðumælum

Lögreglan í Reykjavík handtók í nótt mann sem var með að minnsta kosti kíló af skiptimynt sem hann hafði sogið upp úr stöðumælum með sérútbúinni ryksugu. Það var vaktmaður í bandaríska sendiráðinu sem sá til mannsins og lét lögreglu vita sem gómaði hann þar í grennd. Maðurinn sem er á miðjum aldri er ekki þekktur af afbrotum og ekki liggur fyrir hvort hann hefur gert þetta áður, en lagt var hald á ryksuguna svo athæfið endurtæki sig ekki.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×