Innlent

Sluppu ótrúlega í bílveltu

Fimm manna fjölskylda virðist hafa sloppið þegar jeppi sem hún var í valt. Atvikið varð á Vesturlandsvegi sunnan við afleggjarann á Bröttubrekku um kvöldmatarleytið í gær. Ekki sáust áverkar á þeim en læknir sem kom á staðinn ákvað að senda þau til skoðunar á Landsspítala - háskólasjúkrahús. Fjölskyldan var á suðurleið. Mikil hálka og ísing var á vegum en fjölskyldan komst út úr bílnum og fékk aðstoð vegfarenda. Lögreglan í Borgarnesi segir mesta mildi að ekki skyldi fara verr.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×