Innlent

Hryggbrotnaði í vélsleðaslysi

Vélsleðamaður hryggbrotnaði þegar hann kastaðist af vélsleða sínum austan við Sauðafell á Mosfellsheiði á tólfta tímanum í gærmorgun. Maðurinn hafði ekið sleðanum ofan í dæld í landslaginu og kastaðist við það af sleðanum. Björgunarsveitirnar Kyndill í Mosfellsbæ og Kjölur á Kjalarnesi voru kallaðar út til að ná í manninn sem var ásamt þremur félögum sínum skammt utan við þjóðveginn. Sauðafell er á milli Skálafellsafleggjara og Kjósarafleggjara. Meiðsl vélsleðamannsins eru talin alvarleg og þarf hann í aðgerð vegna hryggbrotsins. Sjúkrabíll flutti hinn slasaða af slysstað á Landsspítala - háskólasjúkrahús í Fossvogi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×