Viðskipti innlent

Tímaritaútgáfa Fróða gjaldþrota

Félagið sem gaf út öll tímarit Fróða hefur verið úrskurðað gjaldþrota. Rétt fyrir gjaldþrotið stofnuðu eigendurnir nýtt fyrirtæki utan um tímaritin og skildu skuldir upp á tæplega hálfan milljarð eftir hjá því gamla. Þetta er ekki dæmigert kennitöluflakk heldur varnaraðgerð, segir framkvæmdastjórinn. Í daglegu tali er það kallað „kennitöluflakk“ þegar fyrirtæki skiptir um nafn og kennitölu, heldur áfram rekstri, en skilur skuldirnar eftir hjá gamla fyrirtækinu sem síðan er jafnvel úrskurðað gjaldþrota. Fróði gefur út sjö tímarit og hefur fjárhagsstaðan ekki verið góð upp á síðkastið. Dótturfélag prentsmiðjunnar Odda keypti fyrirtækið í haust, stofnaði nýtt fyrirtæki og var öll tímaritaútgáfan flutt þangað. Gamla félagið, skuldum vafið, var svo úrskurðað gjaldþrota í síðustu viku.  Kröfurnar nema hálfum milljarði króna og eignirnar duga aðeins fyrir broti af því - þær eru metnar á 37 milljónir. Prentsmiðjan Oddi á helming í kröfunum samkvæmt heimildum fréttastofu og sömu heimildir herma að afgangurinn falli á Sameinaða lífeyrissjóðinn, Lífeyrissjóð Austurlands, birgja og aðra fjárfesta. Páll Gíslason, framkvæmdastjóri Tímaritaútgáfunnar Fróða, segir þetta ekki dæmigert kennitöluflakk. Það sé þegar menn stofni endurtekið fyrirtæki um sama rekstur og skilji eftir skuldir í hvert sinn, þess vegna. launaskuldir og lífeyrisskuldir, og segir Páll að það séu þeir ekki að gera. Spurður hvort þeir séu ekki að skilja eftir skuldir þar sem aðeins sé til upp í brot af þeim segir Páll það óneitanlega vera rétt.  En það eru allt viðskiptaskuldir. Það hefði hins vegar verið refsivert hefði fyrirtækið skilið eftir sig lífeyrissjóðsskuldir eða skuldir gagnvart hinu opinbera. Aðspurður hvort honum finnist forsvaranlegt að stofna nýtt fyrirtæki um sama rekstur og skilja eftir skuldir segir Páll þetta hafa verið eina leikinn í stöðunni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×