Innlent

Eldur í íbúðarhúsi í Mosfellsbæ

Eldur varð laus í íbúðarhúsi að Krókabyggð 14 í Mosfellsbæ síðdegis og voru þrír slökkviliðsbílar sendir á staðinn. Mikill eldur logaði á efri hæð hússins, sem er tvílyft parhús, þegar slökkviliðið kom á staðinn en það hefur nú náð að ráða niðurlögum eldsins. Tveir drengir voru í húsinu þegar kviknaði í og voru þeir fluttir á slysadeild vegna gruns um reykeitrun, að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu. Ljóst er að miklar reykskemmdir hafa orðið á húsinu. Eldurinn kom upp í dýnu á efri hæð hússins og komst þaðan í þakið en ekki er vitað nánar um eldsupptök.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×