Innlent

Hleypti af haglabyssu í heimahúsi

Karlmaður er í haldi lögreglunnar í Reykjavík eftir að hafa hleypt af haglabyssu í íbúð sinni í austurbæ Reykjavíkur. Maðurinn var ekki að ógna með byssunni en þar sem fleira fólk var í íbúðinni skapaðist augljós hætta. Hald var lagt á haglabyssuna og skot en maðurinn er í haldi lögreglunnar og bíður yfirheyrslu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×