Innlent

Ísland verði alþjóða fjármálamiðstöð

Forsætisráðherra. Halldór talaði um alþjóðlega fjármálamiðstöð á Íslandi á síðasta flokksþingi Framsóknarflokksins.
Forsætisráðherra. Halldór talaði um alþjóðlega fjármálamiðstöð á Íslandi á síðasta flokksþingi Framsóknarflokksins.

Sigurður Einarsson, stjórnarformaður KB banka, hefur verið skipaður formaður nefndar sem á að skoða hvernig Ísland geti orðið alþjóðleg fjármálamiðstöð. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra tilkynnti þetta í gær.

Ekki er búið að skipa aðra nefndarmenn en samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins verður það væntanlega gert í næstu viku. Forsætisráðherra hefur í ­nokkurn tíma talað um þennan möguleika, meðal annars á viðskiptaþingi Verslunarráðs Íslands, sem þá hét, í febrúar síðastliðnum.

"Ég á mér þann draum að í framtíðinni verði Ísland þekkt um víða veröld sem alþjóðleg fjármálamiðstöð," sagði Halldór í ræðu sinni. Sagði hann það tækifæri vera vegna þess að á Íslandi störfuðu kraftmikil alþjóðleg fyrirtæki, sem hefðu kosið að eiga hér höfuðstöðvar vegna ákjósanlegra skilyrða af hálfu stjórnvalda. Einnig vegna mannauðs sem hér er og mikils og góðs stöðugleika.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×