Innlent

Olía lak í höfnina á Patreksfirði

Mengunarvarnargirðing var sett upp umhverfis smábátahöfnina á Patreksfirði í fyrrakvöld eftir að í ljós kom að olía hafði lekið í höfnina. Óttast er að nokkuð hundruð lítrar af olíu hafi lent í höfninni að sögn lögreglu. Ekki var vitað í gær hvað olli lekanum en allir bátar og lausir tankar verða rannsakaðir að sögn lögreglu. Megna olíulykt leggur af höfninni enda um hráolíu að ræða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×