Innlent

Töskunni skilað

Tösku sem stolið var í verslun Bónuss við Helluhraun skömmu fyrir jól og innihélt ómetanleg læknisgögn vegna langveiks barns var skilað til lögreglu í fyrrakvöld. Konan sem stal töskunni skilaði henni sjálf eftir að beiðni þess efnis birtist í fjölmiðlum á Þorláksmessu. Sonur eiganda töskunnar er á leið til læknismeðferðar í Bandaríkjunum og voru nauðsynleg gögn vegna meðferðarinnar enn þá í töskunni þegar henni var skilað.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×