Innlent

Rólegt hjá lögreglu

Mjög rólegt var yfir öllu skemmtanahaldi í gærkvöldi eftir óvenju mikinn eril hjá lögreglu víða um land í fyrrinótt vegna drykkjuláta fram eftir allri nóttu. Það virðist því vera að vinnuvikan hafi hjá mörgum hafist degi seinna en almanakið gerir ráð fyrir því ástandið í gærkvöldi og í nótt var líkara því sem gerist aðfararnætur mánudaga. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu gáfu margir vinnuveitendur starfsmönnum sínum frí í gær til þess að þeir fengju einn virkan dag í jólafrí og mun það vera ein aðalskýring þessa.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×