Innlent

Fullur og illa klæddur

Allar björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út rétt upp úr klukkan átta á aðfangadagskvöld til að leita að fertugum manni sem fór frá heimili sínu í Vogahverfinu um kvöldmatarleytið. Maðurinn var talsvert ölvaður og illa klæddur. Níutíu björgunarsveitarmenn og sporhundur leituðu hans í á þriðja tíma uns hann fannst loks fyrir framan mannlaust fyrirtæki í Skútuvogi klukkan 22.30. Þar hafði hann lagst fyrir og var orðinn mjög kaldur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×