Innlent

Rafmagn fór tvisvar af

Rafmagn fór tvisvar af á Vestfjörðum í gær vegna bilana á svokallaðri vesturlínu Landsvirkjunar. Að sögn Kristjáns Haraldssonar, orkubússtjóra Orkubús Vestjarða, tók um einn til einn og hálfan klukkutíma að koma rafmagninu á aftur. Starfmenn þurftu að koma til vinnu úr jólafríi auk þess sem ræsa þurfti allt kerfið upp á nýtt í bæði skiptin. Talið er að vesturlínan hafi farið út í óviðri á Laxárdal.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×