Innlent

Þjófur sofnaði

Maður á fertugsaldri var handtekinn um borð í bát í Ísafjarðarhöfn á jóladag. Hann fór um borð í bátinn til að stela lyfjum. Maðurinn var í annarlegu ástandi og sofnaði áður en hann komst frá borði. Hann var fluttur í fangageymslur lögreglunnar þar sem hann svaf úr sér. Honum var síðan sleppt að loknum yfirheyrslum. Maðurinn hefur áður komið við sögu lögreglu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×