Innlent

Hlupu þjófana uppi

Lögreglumenn á Akureyri hlupu í nótt uppi tvo menn, grunaða um að hafa brotist inn í verslunarmiðstöðina við Sunnuhlíð. Tilkynnt var um innbrot þar og sáust mennirnir í grennd. Þegar lögregla ætlaði að hafa tal af þeim tóku þeir til fótanna en höfðu ekkert að gera í sprettharða lögreglumennina sem handtóku þá. Þeir gista nú fangageymslur og er málið í rannsókn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×