Innlent

Eldur á Stíflu

Mikið tjón varð á bænum Stíflu í Vestur-Landeyjum á þriðjudag þegar eldur kom upp í vélaskemmu. Tilkynnt var um eldinn klukkan tíu í gærmorgun og slökkvilið Hvolsvallar og Hellu voru komin á staðinn fimmtán mínútum síðar. Skemman eyðilagðist í eldinum auk heyvinnutækja og dráttarvéla sem í henni voru geymd. Talið er að tjónið nemi milljónum króna. Önnur hús á jörðinni reyndust ekki í hættu og hvorki dýr né menn voru í hættu. Grunur leikur á að eldurinn hafi kviknað út frá rafmagni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×