Innlent

Gæsluvarðhald framlengt

Héraðsdómur Reykjaness framlengdi í gær gæsluvarðhald yfir Magnúsi Einarssyni um tvo mánuði, til 15. febrúar. Magnús myrti eiginkonu sína að heimili þeirra í Kópavogi aðfaranótt mánudagsins 1. nóvember. Hann tilkynnti morðið sjálfur til lögreglu, auk þess að láta tengdaforeldra sína og prest vita. Hann var þá úrskurðaður í gæsluvarðhald þar til í gær. Magnús myrti konu sína með því að kyrkja hana og er verknaðurinn rekinn til afbrýðisemi hans.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×