Innlent

Sótti veikan sjómann

Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar sótti veikan sjómann um borð í togarann Guðmund frá Nesi sem staddur var um eitt hundrað sjómílur norðvestur af Snæfellsnesi. Þyrlan fór í loftið klukkan rúmlega hálf sjö í gærmorgun og var maðurinn kominn um borð í þyrluna um klukkan níu. Tuttugu mínútur yfir tíu lenti þyrlan á Reykjavíkurflugvelli þaðan sem maðurinn var fluttur á Landspítalann við Hringbraut. Hann var lagður inn á skurðdeild og er líðan hans eftir atvikum góð að sögn vakthafandi læknis á bráðamóttöku.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×