Innlent

Fíkniefni fundust

Húsleit var framkvæmd í íbúðarhúsnæði á Akranesi á föstudagskvöld. Að sögn lögreglunnar á Akranesi lék grunur á að fíkniefni væru þar innandyra. Við leit lögreglunnar fundust tíu grömm af hassi og um þrettán grömm af amfetamíni. Einn maður var handtekinn vegna málsins og færður til yfirheyrslu. Maðurinn játaði að vera eigandi að efninu og telst málið því upplýst. Maðurinn var því leystur úr haldi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×